Laugardagur....

Það var frekar erfitt í gær að kveðja nemendur og starfsfólk BES, en nú eru nýjir tímar framundan og spennandi tímar.

Það er einhver fiðringur í mér í dag, laugardagur, bjart og fagurt úti og ég í einhverju stemningsstuði, væri til í að fara og dansa ærlega og komast í stuð.  Núna sit ég við tölvuna og hlusta á frábært lag sem kemur mér alltaf í gott skap og stuð, lag með Brian Johnson og heitir taste and see, alveg þvílíkt stuðlag sem ekki annað er hægt en að hoppa og dansa þegar maður hlustar á þaðCool http://www.youtube.com/watch?v=s5yrIQNko30  Kannski maður ætti að nota þessa orku í að fara og þrífa aðeins eða taka bílinn i gegnWhistling  Samt er ég búin að komast að því að ég er ekki þessi bílasnyrtipinni, það sem á það til að fara inn í bílinn kemur ekkert alltaf strax þaðan út aftur nema þá bara ég og börnin mínShocking Þannig að ef einhver bráðþráir að komast í að taka til í bíl þá er það í boði hérnaWhistling

Annars vorum við í afmæli áðan hjá snúðnum honum Gísla Rúnari og þar var tekið vel á því í tertum og öðru góðgæti sem þórdís og Gísli höfðu snarað fram og þar smakkaði ég þessa frábærlega góðu frönsku súkkulaði tertu vá hvað hún var góðSmile 

Jæja best að fara að gera eitthvað vitrænt á heimilinu og bíða og sjá hvað kvöldið ber í skauti sérCool

knus og kram

Sædís


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ hæ  skvís ;)

 Gangi þér vel í nýju vinnuni ;)

 Hvað er að frétta af ykkur Ingibjörgu eitthvað farnar að pæla í hitting ??

Kv Elín

Elín Birna (IP-tala skráð) 8.3.2008 kl. 19:28

2 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

Takk Elín ég var einmitt að hugsa þetta í dag, þurfum að fara að koma okkur í gang

Sædís Ósk Harðardóttir, 8.3.2008 kl. 19:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband