Back to school

skólastelpanJæja þá hefst vormisseri á morgun i framhaldsdeildinni í KHÍ.  Ég er bara nokkuð spennt að byrja, þarf reyndar að finna smá extra tíma í þetta, veit svo sem alveg hvar ég fæ hannErrm en það er bara að biðja fyrir því að það gangi allt saman velSmile

Ég ætla mér að gerast borgardama á morgun og fimmtudaginn, fer í bæinn og ætla mér bara að hafa það næs í borginni, hitta vinkonur, fara út að borða, á kaffihús, samkomu og fundi líka bara og hver veit nema maður kíki í eina og eina búðCool.  Nota tímann vel eftir kennslu skoCool 

Ég er að fara í mjög spennandi kúrs sem ég vona að fylli væntingar minar því ég var ekki nógu ánægð með kúrsinn sem ég var í fyrir áramót.

Þannig að nú er bara að hefjast handa og undirbúa sig fyrir fyrstu lotuTounge

Guð blessi ykkur

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Gangi þér vel með námið mín kæra, mundu samt alltaf að hvíla þig vel.  Girl 4 

Ásdís Sigurðardóttir, 29.1.2008 kl. 21:03

2 Smámynd:  Íris Ásdísardóttir

Færðin í bæinn er ekki beint skemmtileg.....svo villtu gjöra svo vel að fara varlega :-)

Íris Ásdísardóttir, 29.1.2008 kl. 22:58

3 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

Takk Ásdís mín, reyni það

Jamm það er málið, ég hálf kvíði því að fara þarna yfir Íris ef það er eitthvað fúlt veður, en takk ég reyni að fara varlega

Sædís Ósk Harðardóttir, 29.1.2008 kl. 23:06

4 Smámynd: Linda Lea Bogadóttir

Duglega frænkan mín.

Nú ætla ég að fara að skoða dagatalið og veðurspánna fyrir febrúar og renna austur. Vona að þú eigir aukadýnu fyrir mig og Heiðu.

Vá hvað ég er orðin eitthvað reykvísk... alltaf svo langt til allra átta frá henni blessaðri Reykjavík. Ekki hefði manni munað um að skjótast í kaffi þegar maður bjó á Akureyri yfir á Krókinn  í sama hvaða veðri sem var... hahaha.

Linda Lea Bogadóttir, 30.1.2008 kl. 23:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband