Hræðilegur harmleikur

Þetta er hræðilegt mál og maður fær alveg gæsahúð og tárast við þessar fréttir. Ég fyllist sorg og reiði við að hugsa um þetta mál.   Hvað er að verða um fólk hér á landi?  Ég votta aðstandendenum samúð mína.  Bið Guð um að veita þeim styrk í sorginni.

Annað sem rennur í gegnum huga manns við þennan atburð, en það er að það eru mjög margar konur sem búa við ótta og ógn fyrrum eða núverandi sambýlis/eiginmanna sinna, þora jafnvel ekki að skilja við þá að ótta við eitthvað slíkt.  Ótta við ógn og hótanir oft á tíðum. 


mbl.is Árásarmaðurinn svipti sig lífi; fannst látinn á Þingvöllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hver segir að þetta sé afleiðing skilnaðar,margir grófir hlutir sem geta gerst og gerast á heimilum landsins,misnotkun barna og þaðan af verra og lausgirtir einstaklingar af báðum kynjum,eyðileggja líf fjölda einstaklinga án þess að myrða þá líkamlega en murka úr fólki lífsgleðina, traust,virðingu,og jákvæðar hugsanir .

Ég fordæmi verknaðinn.En öllum aðstandendum votta ég samúð mína.

Og konunni sem missir tvær persónur úr lífi sínu á þennan hátt vona ég innilega að nái að sigrast á öllum þeim erfiðu hugsunum sem á hana munu sækja til æviloka.

olafur Sveinsson (IP-tala skráð) 30.7.2007 kl. 03:06

2 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

Hjartanlgea sammála þér Ólafur, orð að sönnu.

Sædís Ósk Harðardóttir, 30.7.2007 kl. 08:22

3 Smámynd: Eiríkur Harðarson

Þetta mál ásamt hinu viðbjóðslega eyrnabitsmáli, voru mál sem settu mann virkilega í þann gírinn að fara að velta fyrir sér hvert stefnir. Margt er viðkemur samskiptum kynjanna, sér í lagi í margmenni um helgar er orðið verulega villimannslegt.

Eiríkur Harðarson, 1.8.2007 kl. 01:24

4 Smámynd: Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Jæja elskan  Á ekkert að fara að blogga???? koss og knús til þín.......sjáumst sem fyrst

Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 2.8.2007 kl. 09:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband