Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2007

Rólegt og rómantískt.....

flowersÉg er í einhverjum rómó gír í dag, sit út í skóla, sem kannski er ekki beint rómó umhverfi. En það er nú hægt að hafa það notalegt hvar sem er, ekki satt??    Er að færa inn námsmat og fara yfir verkefni og próf.  Búin að kveikja á kerti og er ýmist með Ragnheið Gröndal í spilaranum að syngja ást og með þér á milli þess sem ég set GIGG í spilarann og hlusta aftur og aftur á Haleljua, vá hvað það er fallegt lag.  Það hlýtur að hafa mjög góð áhrif á námsmatið hjá mérTounge Það er lika bara svo gott að sitja, vinna og hlusta á fallega tónlist og leyfa jákvæðum áhrifum streyma inn í huga og hjarta ekki satt????

Annars er rosa freistandi á þessum árstíma að fara í bústað eina helgi, taka með góðan mat, góða diska bæði fjöruga og soaking diska og bara hugleiða og slaka á heila helgi, kveikja á fullt af kertum, fara í pottinn, lesa,  fara í göngu, sóka og biðja.  Sitja úti um kvöldið og horfa á stjörnubjartan himininn, ég tala nú ekki um ef maður færi með einhverjum sem tæki þátt í þessu með manniCool kemur kannski að því einhvern tímannTounge

Annars er ég ekkert smá spennt fyrir helginni, eins og lítið barn að bíða eftir jólunum.  Það er svo magnað mót í Kotinu alla helgina og ég búin að fá pössun að öllu óbreyttuCool þannig að ég get ekki beðið eftir því að sjá hvað Hann ætlar að gera þess helgi.  Það er rosa mikil þátttaka í þessu móti þannig að þetta verður alveg magnaðSmile víhí ég er svo hyper spennt..... er einhver af ykkur sem þetta lesið að fara?  Ef svo er eruð  þið ekki spenntTounge

Jæja best að halda áfram að meta krílin mín.

Guð blessi ykkur

knús Sædís


Frábær dagur...

Já þessi dagur mun verða góður og dagurinn í gær var magnaður.  Fór í gönguna með krakkana og vinum mínum og þetta var ótrúlegt alveg, tónleikarnir voru líka frábærir, samkristilegir hópar að koma saman og syngja og fl.  Þetta var æðisleg stund í alla staði.  Takk fyrir þetta þið sem stóðuð að þessu öllu.

Ég kom heim seint og síðar meir í gær og þá átti ég eftir  að undirbúa afmælið fyrir Hörð kallinn minn sem varð 12 ára í gærWizard var samt að farast í skrýtunum verk í vinstri hendinni, gat ekki hreyft hana, eins og það væri klemmd taug eða eitthvað, voða skrýtið eitthvað, bara ekkert smá sárt verð ég að segja, gat varla keyrt bílinn heim þ.e tekið beygjur.... humm allt svona pirrar mig frekar mikið því þetta er ekkert smá mikill sársauki og að ætla að sofa svona í nótt var frekar vont.. úff ég er nú ekki vön að kvarta og kveina hér.  Bað fyrir þessu því það var það eina í stöðunni.  Náði þá að útbúar einar 4 tertur og þrjá brauðrétti þannig að það verður nú eitthvað á boðstólnum í dagCool Matardagbókin verður nú ekki beisin þessa dagana... en það verður tekið á því á morgun.

Núna ætla ég að fara að hafa mig til, þrífa kannski smá og skella mér svo á samkomu.

Megið þið eiga góðan og blessaðan dag

 


Matardagbók og fleira

Merkilegt hvað það er gott að halda matardagbók, ég hefði fyrir einhverju sinni ekki getað skráð allt svona samviskusamlega en núna sé ég hvað þetta gerir mér gott.  Elskan hún Berglind fer svo samviskusamlega yfir hana 2x í viku og strikar óhrædd yfir það sem er bannað að borða.   Ég hef komist að einu í sambandi við þetta en það er að ég gæti verið öndShocking Brauð og aftur brauð, það er minn veikleiki þessa dagana, kannist þið við þetta nýbakað gott brauð með góðu viðbiti á eða öðru???? úfff ég á auðveldara með að standast sykur og súkkulaði en brauðið.  Ef ég mætti ráða þá væri ég eins og vaggandi önd með fullan maga af brauði, samt voða krúttleg önd á háhæluðum skóm og svonaWhistling

En þegar maður er í svona híper átaki og er að koma boddíunu í gott lag dugir ekkert hálfkák eins og segir á góðum stað, mataræði, hreyfing og rétt hugsun, hafa Hann með sér er það sem gildir.  Og þegar maður ætlar að verða svona mikil skvísa þá er nú vissara að hafa þetta allt í ordenTounge 

Já þetta er ekki alltaf auðvelt en beuty is painLoL hhhahaha segi svona

jæja best að fara að sofa

Guð blessi ykkur

 


Hjartanlega sammála þeim...

Flott að heyra þessa áskorun hjá hjúkrunarfræðingum.  Algjörlega sammála þeim.  Ég segi bara eins og ég segi hér neðar á blogginu að áfengi á ekki heima að mínu mati í matvöruverslunum.

eins og kemur fram í ályktuninni:

Áfengisvandinn er vaxandi heilbrigðisvandamál hér á landi og kostnaður samfélagsins vegna hans fer vaxandi. Í gögnum frá Lýðheilsustöð kemur fram að áætlaður heildarkostnaður þjóða af völdum áfengisneyslu sé á bilinu 1-3% af þjóðarframleiðslu. Áfengi hefur neikvæð áhrif á fjölda sjúkdóma, er oft orsakaþáttur í slysum og getur haft veruleg neikvæð samfélagsleg áhrif. Áfengisneysla á meðgöngu hefur skaðleg áhrif á þroska barnsins og síðar á fullorðinsárum. Rannsóknir hafa sýnt að samband er á milli aðgengis að áfengi og neyslu. Aukið aðgengi að áfengi mun án efa leiða til aukinnar áfengisneyslu unglinga og annarra einstaklinga í áhættuhópum

Vonandi sér meirihluti þingmanna þetta í réttu ljósi og greiðir atkvæði gegn þessu frumvarpi.


mbl.is Skora á þingmenn að greiða atkvæði gegn áfengisfrumvarpi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugur og sál

"Vitið þér ekki að líkami yðar er musteri Heilags anda 
                                 sem í yður er og þér hafið frá  Guði?..."
                                                 1. Korintubréf 6:19

styrkur

Það er ótrúlegt hvað hugur og sál vinnur saman.  Um leið og kollurinn er í þokkalegu standi þá er miklu auðveldara að hugsa um líkamann.  Með styrk Hans sem ekkert er um megn ganga hlutirnir miklu betur.  BootCampið er alltaf jafn skemmtilegt, við erum að skrifa matardagbók sem Berglind les samviskusamlega yfir reglulega og strikar grimmt í ef henni sýnist svo.  www.selfossgospel.is hér eru myndir af gospel bootcamp sem við erum í nokkrar saman.

Brauð og súkkulaði er minn helsti löstur, hvernig á maður að fara að því að minnka brauðátCrying
 Ég gæti lifað á brauði einu saman daginn út og inn með smá súkkulaði hér og þar. Samt er búið að segja að súkkulaði sé holt en samt má maður bara borða pínkupons, skrýtið.  En það skemmtilega við þetta allt saman, þennan breytta lífsstíl er að nú er ég farin að geta notað fullt af fötum sem ég er ekki búin að geta notað í smá tima og sumt meira að segja orðið of stórtLoL þannig að nu er bara að setja það í poka og gefa í Rauða krossinn. Því ég ætla mér ekki í þessa stærð aftur.  Og ég er þess fullviss að geti bara gengið.  Maður á að vera bjartsýnn og jákvæður og væntandi er það ekki.

Annars er nú törn framundan í vinnunni, annarskil sem þýðir próf og yfirferð á námsmati og foreldraviðtöl.  Það er ótrúelgt hvað tíminn líður hratt.  Fyrr en varir verða komin jól og ég ætla EKKI að skreyta svona mikið í ár eins og undanfarin ár.... seríurnar eru allar í einni skemmtilegri flækju í svörtum ruslapoka uppi á lofti, þannig að í ár verða kertaljósajól eins og sönnum umhverfisisnna og VG manneskju sæmirCool  Ekki nema riddarinn á hvíta hestinum komi aðsvífandi og leysi þetta bara fyrir mig.  ÉG er líka farin að verða ragari við að hanga uppi á þaki því það er svo hátt sumstaðar...

jæja best að fara að gera eitthvað annað en að bulla hér eitthvað

Guð blessi ykkur

knús SædísHeart


Að hlusta á það sem Hann er að segja og gera....

Whispers


The man whispered, "God, speak to me" and a meadowlark sang.

fiugl

But, the man did not hear.


So the man yelled, "God, speak to me" and the thunder rolled across the sky.

ský

But, the man did not listen.


The man looked around and said, "God let me see you." And a star shined brightly.

sol
But the man did not see.


And, the man shouted, "God show me a miracle." And, a life was born.

born
But, the man did not notice.

So, the man cried out in despair, "Touch me God, and let me know you are here."


Whereupon, God reached down and touched the man. But, the man brushed the butterfly away

fiðrildi
and walked on.


I found this to be a great reminder that God is always around us in the little and simple things that we take for granted ... even in our electronic age.


So I would like to add one more:


The man cried, "God, I need your help!" And an e-mail arrived reaching out with good news and encouragement.

tolva
But, the man deleted it and continued crying


Don't miss out on a blessing because it isn't packaged the way that you expect.

gud

 Það er svo mikilvægt að hlusta, ekki bara biðja og rjúka svo í burtu og meðtaka ekki það sem sagt er við okkur.  Gefa sér tíma til að hugleiða og meðtaka.


Mögnuð helgi

alfaJá það má sko sannarlega segja að þessi helgi sé búin að vera frábær í alla staði.  Fór á skemmtilega samkomu í bænum á föstudaginn sem var í umsjón unga fólksins.  Flottur fyrirlestur hjá Tony Fitzgerald.  Á laugardaginn var yndisleg stund hjá Jesú konum á Selfossi þar sem við hittumst alltaf fysta laugardag í hverjum mánuði frá kl. 10-12.  fór svo að vinna eftir hádegi og svo á stórflotta tónleika um kvöldið með Shelu vinkonuTounge  í morgun var svo virkilega góður fundur í al-anon og var 11. sporið til umræðu, það er svo fráæbært viðhaldsspor, tekur á þvi hvernig maður stundar prógrammið áfram og viðheldur sambandi sínu við æðri mátt.   Síðan var samkoma þar sem ég tók skírnSmile ótrúlega magnað og ég á eiginlega ekki orð til að lýsa því.  www.selfossgospel.is  Alfahópurinn kom síðan upp, söng og vitnaði frá sl. helgiCool  Fór síðan í bæinn seinni partinn þar sem ég fór með krakkana í búðir og haldið þið að það sé ekki bara búið að skreyta Kringluna og allt orðið fullt af jóladóti í búðum.... svoldið snemmt finnst mér ég keypti samt jólakort, ætla ekki að föndra þau í árCrying baka kannski bara í staðinn fyrir jólinTounge.  Fórum svo á samkomu og svo á KFC þar sem ég hélt upp á daginn með uppáháldinu mínu kjúklingaborgara og meðlætiCool veit ekki alveg hvað Berglind segir við því í matardagbókinni minniShocking en ÉG ÁTTI það svo sannarlega skilið í dagLoL

Næturvaktin var frábær í kvöld, Jón Gnarr fór á kostum eins og alltaf.  ÉG lá í kasti með krökkunum yfir þessum þætti, þvílík týpa sem hannleikur svo og Pétur JóhannLoL

SVo bara vinnuvika framundan og afmæli hjá Herði mínum næstu helgi 12 ára gamall kallinn, þannig að það verður pizzupartý á föstudaginn fyrir vinina hans.

Jæja Guð blessi ykkur

knús Sædís


Hugrenningar

  • Kannski verðum við að hitta
    ranga fólkið áður en við hittum rétta fólkið,

    svo að við kunnum að vera þakklát þegar við hittum loksins þann sem
    hentar okkur.

  •  Kannski opnast dyr
    hamingjunnar á einum stað um leið og þær lokast á öðrum
    ,

  •  en oft störum við svo lengi á
    lokuðu dyrnar að við sjáum ekki hinar sem hafa opnast.



 Kannski er bestu vinurinn sá
sem þú getur rólað þér með á veröndinni án þess að segja orð og síðan gengið í
burtu og liðið eins og þú hafir átt eitt besta samtal ævi þinnar.

Kannski er
satt að við vitum ekki hvað við höfum átt þangað til að við missum það, en það
er líka satt að við vitum oft ekki hvers við höfum saknað fyrr en við öðlumst
það.

Það eitt að gefa einhverjum alla okkar ást tryggir ekki að viðkomandi
elski okkur á móti. Ekki búast við ást í skiptum fyrir ást; bíddu þangað til
ástin vex í hjörtum annarra og ef það gerist ekki, skaltu þakka fyrir að ástin
hafi vaxið og dafnað í þínu hjarta.

 Kannski tekur það einungis mínútu að brjóta
einhvern niður, klukkutíma að láta sér líka við einhvern og einn dag að verða
ástfanginn af einhverjum, en það getur tekið lífstíð að gleyma einhverjum.


Kannski ættir þú að reyna að ná í einhvern sem fær þig til að brosa, vegna þess
að eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt. Ekki fara eftir útliti, það getur
blekkt. Ekki fara eftir auðævum, þau geta horfið. Finndu einhvern sem fær
hjarta þitt til að brosa.

 Þegar þú fæddist varstu grátandi og allir í kringum
þig voru brosandi. Lifðu þannig að þegar þú deyrð verðir þú brosandi og allir í
kringum þig grátandi


Ótrúlegt rugl

Ég á nú varla til orð yfir þessari frétt.  Hver ákveður það hvort að einstaklingur sem átt hefur við áfengisvanda að stríða komi til með að kosta tryggingarfélögin meira en aðrir? eða fá yfir höfuð ekki að tryggja sig?  Hvers vegna að leita í fortíðina þegar fólk hefur snúið við blaðinu.  Langflestir sem ég þekki og hafa farið í áfengismeðferð lifa mjög heilsusamlegu lifi bæði hvað varðar líkamlega og andlega uppbyggingu.  Þannig að margir sem ekki hafa þurft að leita sér lækningar mættu taka margt í þeirra daglega fari til fyrirmyndar. 

 Og hvað verður svo næst, reyna þau ekki að komast í skýrslur hjá ísl.erfðfargreiningu og finna tengsl á milli alkahólista og aðstandenda og þar með hækka þeirra tryggingar, reyna að finna fleiri sjúkdóma s.s þunglyndi og fl. til ða geta hækkað enn meira iðgjöld sem flestra.  Þetta er ótrúlegt í einu orði sagt.


mbl.is Óvirkir alkar fá ekki tryggingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband