Enn ráðist á fjölskyldufólk.

Hærri skattar á eldsneyti skv. þessari frétt þýða um 60 þúsund króna hækkun á útgjöldum fyrir fjölskyldu á ári.

Hvað með launin, hafa þau hækkað svona mikið á einu ári?

Það er margt fólk sem þarf að ferðast talsverða vegalengd til þess að koma sér í og úr vinnu og þarf til þess að nota bíl. Það eru ekki allir sem hafa tök á því að nota strætó.

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar bitna flestar á hinum almenna launþega í þessu landi, litlum einyrkjum sem, eldri borgurum og öryrkjum.

Hvar er skjaldborgin sem Jóhanna lofaði fólkinu í landinu?


mbl.is Bensínið kostar 60.000 meira
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Rúnar Ipsen

hef verið að velta fyrir mér hvort ekki sé kominn tími á Austurvöll Vanhæf ríkisstjórn

Jón Rúnar Ipsen, 30.11.2009 kl. 08:25

2 Smámynd: ThoR-E

60kr útgjöld bara vegna bílanotkunarinnar.

Síðan á eftir að hækka lánin af fasteignum ofl.

Vanhæf skattaríkisstjórn !

ThoR-E, 30.11.2009 kl. 08:32

3 Smámynd: ThoR-E

60 þúsund kr. útgjöld.

átti þetta auðvitað að vera.

ThoR-E, 30.11.2009 kl. 08:33

4 identicon

Smá misskilningur..... Jóhanna hefur meint GJALDBORG en ekki skjalborg, því ALLT sem hún hefur gert er til að íþyngja heimilunum í landinu og ná þaðan tekjum. Já það var aldeilis að hennar tími kom, þvílík vonbrygði.

Biggi (IP-tala skráð) 30.11.2009 kl. 08:55

5 Smámynd: Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir

Sæl Sædís,

Ég held að þessi ráðstöfun bitni verr á fólki sem býr á landsbyggðinni og neyðist til að aka lengri vegalengdir, jafnvel daglega. Þeir sem búa í Reykjavík geta frekað hjólað eða tekið strætó. Annað mál er að bílar eru mengandi og fólk ætti almennt að reyna að nota þá sem minnst, en það kemur ekki endilega þessari skattlagningu við.  Með kærri kveðju frá Selfossi. Ingibjörg.

Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir, 30.11.2009 kl. 09:21

6 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Strætó gengur líka fyrir eldsneyti úr jarðolíu.  Og mjólkurbíllinn.  Og Ford Transit.

Allar ferðir slíkra farartækja munu hækka í verði og allt sem í þeim er flutt.  Nema fólkið.

Ásgrímur Hartmannsson, 30.11.2009 kl. 09:47

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þetta er allt saman svo ömurlegt.

Ásdís Sigurðardóttir, 30.11.2009 kl. 12:58

8 identicon

ertu gengin úr VG?

Gullvagninn (IP-tala skráð) 3.12.2009 kl. 13:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband