Enn einn leikurinn

Hvað með öll þau loforð sem gefin voru sl. haust þegar Jóhanna og Ingibjörg Sólrún stóðu í viðtölum í fjölmiðlum og lofuðu öllu fögru, lofuðu að slá skjaldborg um heimilin, að íbúðalán hjá bönkunum færðust yfir til Íbúðalánasjóðs?????

Núna þegar verður búið að færa kröfuhöfum bankana, erlendir aðilar að mestu líklega mun það vera vatn á myllu Evrópusinna að nú sé enn mikilvægara að taka upp Evru, ganga í Evrópusambandið.  Einnig sé ég ekki að íbúðalán verði færð yfir til íbúðalánasjóðs þegar erlendir kröfhafar eiga orðið þau lán.

Ég sakna þess gríðarlega mikið að sjá ekki meira gert fyrir hinn almenna íbúa þessa lands, atvinnuleysi eykst, verðbólga enn í toppi, vörverð hækkar og munur á milli stétta eykst. Á meðan þetta er að gerast eru stjórnvöld einsýnt á ESB.

Hér þarf að huga að einhverju öðru en því máli.


mbl.is Glitnir eignast Íslandsbanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sævar Einarsson

Ég hélt að Glitnir hefði orðið gjaldþrota í Okt í fyrra, hvernig getur gjaldþrota fyrirtæki eignast eitthvað, þetta er alveg hreint magnað fyrirbæri.

Sævar Einarsson, 20.7.2009 kl. 09:51

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Það er sama helv. steypan í þeim öllum þessum pólutíkusum

Ásdís Sigurðardóttir, 20.7.2009 kl. 09:56

3 Smámynd: Rafn Gíslason

Sædís mín gleymdu ekki þætti VG í þessu máli Steingrímur J situr að mig minnir í stól fjármálaráðherra er það ekki .

Ég held að forusta VG þurfi illilega að fara að hugsa sinn gang. Ég hef sagt mig úr flokknum og Sigurlaug er að spá í að gera slíkt hið sama.

Rafn Gíslason, 20.7.2009 kl. 12:03

4 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

Já það er satt Ásdís.
Það er rétt Rafn, við Gummi erum að íhuga það sama.  stofnum nýjan flokk, lýðræðisflokk......

Sædís Ósk Harðardóttir, 20.7.2009 kl. 15:05

5 Smámynd: Ragnar Kristján Gestsson

Kannski tek ég undir þessu tómu leiðindi hérna en mér finnst heldur ekki VG hafa staðið sig merkilega sem "aflið sem stendur gegn ESB."  Þú kannski útskýrir fyrir mér hvernig þeir halda sín kosningaloforð?

Eða kannski hefur Ásdís einmitt rétt fyrir sér: sami bakhlutinn undir þeim öllum!

Ragnar Kristján Gestsson, 20.7.2009 kl. 21:45

6 Smámynd: Rafn Gíslason

Já Sædís það verður eitthvað að gera, en ég er farin að vinna fyrir Heimssýn og ætla að beita kröftum mínum þar gegn ESB aðildinni. Þar er verið að fylkja liði núna til að hefja vinnuna sem framundan er gegn ESB aðild. Hvað ég geri eftir það verður að koma í ljós, nú sem stendur er ekkert stjórnmála afl sem heillar mig, en ef þú hefur áhuga á að vinna með Heimssýn láttu þá endilega vita.

Rafn Gíslason, 20.7.2009 kl. 23:20

7 identicon

Það er ekki hollt að slíta sér út við það að láta traðka á eigin réttlætiskennd af þeim sem maður hélt að væru "sitt fólk" - því styttist í að maður fari að þínu dæmi Rafn.

Gummi (IP-tala skráð) 21.7.2009 kl. 12:48

8 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Ég vil benda ykkur á að engin þörf er á að stofna nýjann flokk, því hann er til staðar og bíður eftir ykkur.  Samtök Fullveldissinna eru öllum opin.

Axel Þór Kolbeinsson, 21.7.2009 kl. 14:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband