Eignasafn Björgólfs.....

"Nú vinn ég alla daga við að skapa verðmæti úr eignasafni mínu "

Það er virkilega athyglisvert að lesa þessa frétt.  Hvers vegna er ekki gengið að eignasafni hans og allra hinna útrásavíkinganna.

Hvers vegna eru þessir menn og þ.m.t Björgólfur ekki látnir bera ábyrgð á eigin klúðri, spillingu, ráni, óheiðarleika og hverju svo sem má nefna þessar aðferðir þeirra til að ræna þjóðina.


mbl.is Hugsar daglega um Icesave-klúðrið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Liberal

hann hefur borið ábyrgð á eigin klúðri, hann hefur misst allt sitt eigið fé í Landsbankanum.

Þú þarft, enn sem komið er (hvað svo sem vinstristjórnin ákveður síðar meir), að sanna rán og óheiðarleika áður en þú getur refsað fólki.  Sem betur fer búum við í þjóðfélagi þar sem ekki nægir að misviturt fólk hrópi upp yfir sig einhverja vitleysu til að refsa fólki úti í bæ. 

Liberal, 23.6.2009 kl. 13:22

2 Smámynd: Egill

tja Liberal, ég veit ekki betur en að hópur fólks hafi safnast saman og heimtað að einhverjum manni yrði refsað, lögum var breytt til að refsa honum, og hvað sagði hann og gerði, tja.

hann sagði "við borgum ekki" sem er það sem stór hluti þessa fólks segir núna og er að mótmæla icesave samningnum, kaldhæðni?

hann eyddi orku og tíma í að benda á að einhver aðili var með haug af fyrirtækjum sem voru einungis kennitölur og viðskipti á bak við tjöldin væru óeðlileg, og þetta þyrfti að stoppa, þessi aðili átti fréttablaðið og stöð tvö og fyrir vikið var umfjöllunin í þjóðfélaginu næstum 50/50 . helmingur pældi ekki í þessu, hinn hélt að hann væri í einhverjum persónulegum árásum á viðskiptamann, sem væri ekkert búinn að gera rangt.

tja er fólk enn sammála því sem fór þessum tveim mönnum á milli, Davíð og Jón Ásgeir,   nei veistu ég held að misviturt fólk sem hrópar ráði enn ferðinni meira en þau ættu að gera.

þau eiga að hafa sitt atkvæði en þess á milli að mótmæla hlutum sem SKIPTA MÁLI, ÞEGAR ÞAU VITA UM HVAÐ MÁLIÐ SNÝST. í að heimta að davíð yrði vikið úr starfi og að hætta eigi við icesave samningana, þetta fólk veit upp til hópa lítið um hvað málið snýst, þau eru fúl . reið og ósátt við að heyra um háar upphæðir og heyra orðin "skuldir" og vilja ekki að þau lendi á þeim, hugsa ekki lengra fram í tímann og fyrir vikið sýna okkur hve lítið þau skilja þessi mál.

en,  þetta er svo sem ósanngjarnt að mér að heimta að umræðan í samfélaginu um þessi mál sé á einhvern máta málefnaleg.

ég gafst upp fyrir þónokkru.

ps. davíð var svo sem ekkert saklaus, en í sambandi við jón ásgeir þá hafði hann rétt fyrir sér, og í sambandi við að borga ekki þá er ég ósammála, en fólkið sem vildi hann burtu er það greinilega ekki.

Egill, 23.6.2009 kl. 14:01

3 Smámynd: Finnur Bárðarson

Þetta heitir íslensk réttvísi, og henni stendur ekki til að breyta.

Finnur Bárðarson, 23.6.2009 kl. 15:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband