Siðleysi Guðlaugs á sér engin takmörk....

Ég er sannfærð um það að þorra Íslendinga finnst 2 milljónir vera ágætis upphæð.....

  "Miðað við það umhverfi sem var þá þóttu þetta ekki háar upphæðir,“ sagði Guðlaugur í þættinum."

Mér finnst þetta há upphæð, ég er sannfærð um að manneskja á örorkubótum, atvinnuleysisbótum, manneskja sem vinnur skv. lágmarks taxta eða bara manneskja á meðallaunum.

Ef einhverjum finnst þetta í lagi þá væri fróðlegt að heyra frá honum.

Þetta lítur vissulega út sem mútur.


mbl.is Segir 40 aðila hafa styrkt sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Styrkirnir voru innan löglegra marka og rökstuddi Guðlaugur vel í þættinum að ekki væri um mútugreiðslur að ræða. Kosningabarátta er dýr og óæskilegt er að frambjóðendur borgi hana úr eigin vasa, því eru styrkirnir nauðsynlegir. Þá hafa þingmenn annara flokka sömuleiðis þegið styrki í sinni kosningabaráttu. Þetta er farið að minna á einelti gegn honum Guðlaugi og mjög óeðlilegt að hann sitji undir slíkum ásökunum þegar ljóst er að hann hefur farið algjörlega að lögum.

Hilmar Gunnlaugsson, 23.4.2009 kl. 18:57

2 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

Hver segir að prófkjörsbarátta þurfi að vera dýr?  Vg hefur verið með prófkjör/forval sem ekki hefur kostað frambjóðendur mikla peninga. þar er útbúinn sameiginlegur bæklingur með öllum frambjóðendum og hann sendur út.

Einelti gagnvart Guðlaugi... fólki er bara misboðið og lætur það í ljós. Ef einhver réttir öðrum 2 milljónir þá þarf enginn að segja mér annað en að sá hinn sami vilji fá eitthvað á móti.

Sædís Ósk Harðardóttir, 23.4.2009 kl. 19:31

3 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Það snýst ekki um hvort baráttan þurfi að vera dýr eða ekki, heldur hvort lög um kosningastyrki séu virt. Sé ekki sannað neitt ómaklegt á Guðlaug er engin ástæða til þess að gagnrýna hann.

Hilmar Gunnlaugsson, 23.4.2009 kl. 19:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband