Hvað er að í þessu landi okkar????

Maður vissulega hugsar um það hvað sé að í okkar landi. 

Fólk stofnar fyrirtæki, skuldsetur það eins hátt og hægt er, fyrirtækið fer á hausinn, skuldirnar lenda á öðrum, þeir sem stofnuðu fyrirtækið bera enga ábyrgð, eru skuldlausir og kaupa fyrirtækið aftur þegar það er búið að hreinsa af því gömlu skuldirnar þannig að þá er hægt að hefja leikinn á nýDevil

Er ekki kominn tími til í þessu viðskiptalifi hér á landi að þeir sem koma sér í skuldir axli sjálfir ábyrgð á sínum skuldum.

 Ekki að hinn almenni borgari þurfi alltaf að borga brúsann líkt og er að gerast með bankahruninu og útrásarliðinu.


mbl.is Next og Noa Noa aftur í eigu sömu hjóna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Að sjálfsögðu borgar almúginn þetta líka.  Kröfurnar sem hverfa við gjaldþrot lenda á bönkum sem við öll "eigum".

 Þegiðu & Borgaðu

JH (IP-tala skráð) 9.12.2008 kl. 11:54

2 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

Nákvæmlega JH, þetta er orðið svo rotið allt.  Það verður eitthvað að fara að gerast hérna til að stöðva þetta sukk allt saman.

Sædís Ósk Harðardóttir, 9.12.2008 kl. 12:04

3 identicon

Ég var einmitt að velta fyrir mér hvort ég geti ekki stofnað ehf. sem kaupir íbúðina mína af mér, fer svo á hausinn og ég eignist aftur íbúðina úr þrotabúinu.

Hvað segja löglærðir menn við því?

Kv. Svíi

Svíi (IP-tala skráð) 9.12.2008 kl. 13:12

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Það er víða pottur brotinn, er þetta angi af ESB lögunum, ekki þyrstir mig þangað.

Ásdís Sigurðardóttir, 9.12.2008 kl. 13:15

5 identicon

Gat verið að þetta væri ESB að kenna, eins og allt bankahrunið eins og það lagið sig.

Er okkur ekki nær að líta í eigin barm?

Það er alveg ljóst að skv ESB lögum þá myndi svona hreinsun stangast fullkomlega á við lög. Þú getur ekki losað þig við skuldirnar sísvona og firra þig algera ábyrgð frá lélegum rekstri og er gjaldþrot litið mjög alvarlegri augum þar.

Svona viðbjóður er ein af ástæðunum fyrir því að við eigum að ganga inn í ESB ekki seinna en í gær.

Innganga í ESB myndi kalla á mun meiri alþjólegar skuldbindingar sem myndu m.a. minnka spillingu svo um munar og þar eru hlutafélagalög engu undanskilin. Neytendamál er eitt stærsta baráttumál ESB.

En kjósi menn svo þá er hægt að halda þessu sukki áfram og halda áfram að taka við svona bull lögum frá innlendum löggjafa sem sjálfur stendur í atvinnurekstri sem nýtur góðs af svona lögum. Þá er bara að haka við V-ið!

Kv. Svíi

Svíi (IP-tala skráð) 9.12.2008 kl. 13:50

6 identicon

Það mun ekkert breytast hér - ekki nú frekar en endranær. Enda eru það ráðherrarnir sem leggja línurnar - líka með það hvernig "eigi að mótmæla rétt".

Gummi (IP-tala skráð) 9.12.2008 kl. 14:25

7 Smámynd: Eyjólfur Sturlaugsson

Sæl

Það er alltaf almenningur sem borgar, hvort sem um er að ræða vinstri- eða hægri- stjórnmál.  Einfaldlega vegna þess að það er enginn annar í landinu...en almenningur.  Þeir sem eiga fyrirtæki og fara á hausin...er líka almenningur.

kv.

Eyjólfur.

Eyjólfur Sturlaugsson, 11.12.2008 kl. 23:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband