En þú færð nú örugglega alveg samt þína jólagjöf......

Ef þetta er ekki hroki í manninum þá veit ég ekki hvað.  En þessi orð lét seðlabankastjóri falla í svari sínu við fréttamenn í útvarpinu fyrr í morgun, það verða nú örugglega margir Davíð sem eiga erfitt með að kaupa jólagjafir handa börnum sínum þessi jól.

En mikið tala þeir á skjön við hvorn annan seðlabankastjóri og fjármálaráðherra.  Davíð veit sem er að þetta mun  koma sér illa við fólk og fyrirtæki á meðan ráðherra fjármála telur þetta ekki áfall fyrir fyrirtækin í landinu.

Þetta er víst áfall fyrir fyrirtækin í landinu og heimilin.  Fjármálaráðherra verður að fara að láta af hroka sínum í garð fólksins og viðurkenna vanmátt sinn í þessu öllu saman. 

 


mbl.is Erfitt fyrir fólk og fyrirtæki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eiríkur Harðarson

Verra þykir mér að BTB og hans fylgifiskar, skyldu hafa haldið áfram að haga sér eins og fílar í postulínsbúð. þrátt fyrir að það hafi verið komið rautt ljós á þá strax árið 2006 þegar lausafjárkreppan reið yfir, svona gera ekki fullorðnir menn sem eiga að kallast með FULL FEMM. Samt álít ég að hegðun ráðamanna sé slík vanvirðing við okkur skóflupakkið(almenning) að þeir. Séu hreint út sagt að sýna hve fj...... óhæfir þeir séu.

Eiríkur Harðarson, 28.10.2008 kl. 14:02

2 identicon

Það tala allir á skjön og það er ekkert nýtt þegar að menn eru að breiða yfir gamla lygi með nýrri.

Hroki Davíðs er auðvitað rannsóknarefni - en sú rannsókn verður sjálfsagt að bíða betri tíma því sjálfsagt eru allir rannsóknarsjóðir tómir eða að tæmast.

Gummi (IP-tala skráð) 28.10.2008 kl. 15:34

3 identicon

það verður bara vonandi enginn "Davíð" í næstu kynslóð

Óðinn k Andersen (IP-tala skráð) 29.10.2008 kl. 13:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband