Bitruvirkjun- ósamstaða í nýjum meirihluta????

Það er athyglisvert að fylgjast með  störfum nýs meirihluta í Reykjvavík.  Nýr meirihluti skipar nýja breytta stjórn OR, þar situr Kjartan Magnússon sem formaður en Ásta Þorleifsdóttir F- lista varaformaður.

OR hefur talsvert um Bitruvirkjun að segja.  þarna er strax komin ósamstaða í nýjum meirihluta.  Ásta Þorleifsdóttir segist andvíg hugmyndum um Bitruvirkjun, á meðan Kjartan vill ekki alveg gefa hreinar línur um það, segist vilja bíða eftir umhverfismati en segir jafnframt ekki loku fyrir það skotið að fallið verði frá hugmyndum um Bitruvrikjun.

Ég vona svo sannarlega að Ásta standi undir nafni sem umhverfissinni og standi með sjálfri sér og sínum baráttumálum þrátt fyrir að hafa farið í þennan meirihluta.  Ég vona að að hún komi í veg fyrir þessi skelfilegu áform um Bitruvirkjun.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband