Helgarfrí...

helgiJá það er víst kominn föstudagur á ný, vikan flýgur svo sannarlega áfram.  Ég er samt núna næstum búin að fullgera herbergi frumburðarins og er að komast fullorðinssvipur á þaðCool  Annars sé ég fram á notalega og ljúfa helgi.  Reyna að gera eitthvað að því að heimsækja vinkonur mínar, fara í sund og svo kannski með krakkana í bíó ef tími vinnst til.  Annars var ég á löngum fundi hjá íþrótta- og tómstundanefnd sl. fimmtudag og margt þar gott ákveðið.  Minnihlutinn vakti undrun mína á sínum málflutningi og mun ég skrifa nánar um það síðar því ég er enn svo hneiksluð á viðhorfum þeirra til okkar sem búum hér við ströndina.

Smá svona einn léttur í vikulokin síðan:

Nú fengum við svarið....

Það er bara 5 cm langt

en það
  


FULLNÆGIR  k0num í
 

HVERT SKIPTI
 


.

 


.
kort

 

góða helgi elskurnar
 







« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Það verður gaman að heyra hvað minnihlutinn var að tala um.  Góða helgi.

Ásdís Sigurðardóttir, 8.9.2007 kl. 10:49

2 Smámynd: Linda Ásdísardóttir

Og hvað sagði minnihlutinn?  Að við ættum ekki að halda 17. júní á Eyrarbakka, bara mæta á Selfoss?   Eða að það ætti að leggja niður Ungmennfélagið á Stokkseyri og bara mæta á Selfoss.....  Hvað annað?

Linda Ásdísardóttir, 8.9.2007 kl. 21:00

3 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

já það lá við, mér er bara spurn, eru íbúar við ströndina ekki jafnmikilvægir og íbúar Selfoss að mati minnihlutans..... more later

Sædís Ósk Harðardóttir, 8.9.2007 kl. 21:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband