Er ekki allt í lagi???

Nú er ég svo sannarlega hissa, hvað er að gerast hjá fólki.  Dugar þessi hræðsluáróður svona rosalega vel á fólk???? Ég bara spyr. 

 Hvers vegna skoðar fólk ekki stöðu sína, bilið á milli þeirra sem fátækir eru og efnaðir.  Hvers vegna skoðar fólk ekki launamun kynjanna, jafnréttismál, jafnrétti til búsetu, landið okkar???

Eigum við að fórna náttúruauðlindum til erlendra stóriðjufyrirtækja??? Hvað með fátækt er fólk bara að taka því þegjandi og hljóðalaust að fátækt líðist á Íslandi, landi sem ætti að geta búið fólki mun betri kjör.

 Vá ég er orðlaus, vona að ykkur snúist hugur og kjósið VG á kjördag


mbl.is Fylgi Framsóknarflokksins tekur stökk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það hefur ekki hvarflað að þér að íbúar landsins séu einfaldlega ánægðir með ástandið á Íslandi og vilji ekki fórna því í hendurnar á fólki sem mun glutra því niður aftur? Sitjandi ríkisstjórn hefur skapað ótrúleg tækifæri til sóknar fyrir bæði einstaklinga og fyrirtæki sem hefur skilað sér í gífurlegum hagvexti, auknum tekjum til ríkissjóðs þrátt fyrir skattalækkanir, rúmri helmingsaukningu á kaupmætti og atvinnusköpun sem á sér varla hliðstæðu í Íslandssögunni. Og á þá að skipta þessu út fyrir skattahækkanir, samdrátt í verðmætasköpun, útblásið ríkisbákn og óhagkvæman rekstur þess?

Mér hefur í það minnsta liðið ágætlega hér á Íslandi síðustu 16 ár, og meirihluti fólks telur kjör sín hafa batnað á því tímabili ef marka má skoðanakannanir. Hvaða mögulega ástæða gæti þá verið fyrir því að setja x við vinstri flokkana?

Svo sé ég að þú hefur ekki lesið greinarnar sem ég benti þér á síðast. Í það minnsta heldurðu áfram að fjargviðrast yfir kynbundnu launamisrétti.

Góðar stundir 

Hafsteinn Gunnar Hauksson (IP-tala skráð) 9.5.2007 kl. 14:19

2 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

Hæ Hafsteinn

Nei því miður er ég á fullu í námsmati í vinnunni hjá mér og ekki gefið mér tíma til að finna þær,en skal kíkja á þær.  Það sem ég skil ekki er að það er svo stór hluti sem hefur það skítt, því miður.  Vissulega er stór hópur fólks líka sem hefur það gott og er það vel.  ÉG skil alveg að þeir sem hafa miklar tekjur og eiga miklar eignir kjósi sjáflstæðisflokkinn.  En þar sem stór hópur fólks býr t.d við fátækt finnst mér ekki hægt að halda áframhaldandi stjórn áfram.  Fátækt ber að útrýma.

Sædís Ósk Harðardóttir, 9.5.2007 kl. 14:25

3 identicon

Við erum sammála um það, fátækt ber að útrýma. Ég er hinsvegar ekki á því að það eigi að gerast á kostnað þeirra velstæðu, enda kemur það niður á samfélaginu í heild. Eins og oft hefur verið sagt, þá er traust efnahagsstjórnun stærsta velferðarmálið og því er ég sammála.

 Annars hef ég gaman af því að lesa bloggið þitt og þakka þér fyrir svörin:)

Gangi þér vel í námsmatinu. 

Hafsteinn Gunnar Hauksson (IP-tala skráð) 9.5.2007 kl. 14:34

4 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

Takk fyrir það

 Já það er nú gott að geta verið sammála um eitthvað.  Enda held ég nú að allir hljóti að vilja velferð og jöfnuð bara mismunandi aðferðir og mismunandi forgangsröð  hjá flokkum.  VG setur velferð og jöfnuð í fyrirrúm á meðan aðrir kannski setja það aðeins aftar

Sædís Ósk Harðardóttir, 9.5.2007 kl. 14:40

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sammála Sadís en ég held að þetta hopp hjá Framsókn sé ekki komið til að vera.  Ef ríkisstjórnin heldur velli þá á fólk einfaldlega ekkert betra skilið og verði því að góðu.

Jenný Anna Baldursdóttir, 9.5.2007 kl. 14:51

6 Smámynd: Jóhann Rúnar Pálsson

Miðað við hvernig málflutningur Guðfríðar Lilju var í Kastljósinu í gær finnst mér nú ekki líklegt að landsbyggðarlýðurinn telji það vænlegt að kjósa Vg. Vera bara á móti því sem að gert er og hefur skilað ákveðinni hagsæld inná svæði e.o. Austurlandið. Það er ekki ásættanlegt að einungis suðvesturhorn landsins sitji að kjötkötlunum.

Jóhann Rúnar Pálsson, 9.5.2007 kl. 15:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband