Til umhugsunar

8

Ég tók þessa fínu færslu af blogginu hennar Jennýar og birti hana óbreytta fyrir þá sem vilja veg kvenfrelsis sem mestan (konur og karlar auðvitað).

Gjörið svo vel!

"Ef þú ert femínisti og veltir fyrir þér hvað skuli kjósa á laugardaginn, lestu þá þetta um Vinstrihreyfinguna grænt framboð:

  • VG er eini flokkurinn sem hefur gripið til sértækra aðgerða til að jafna kynjahlutföll á framboðslistum, enda teljum við mikilvægt að auka hlut kvenna á Alþingi og í sveitarstjórnum. Niðurstöður kannana undanfarinna vikna benda til þess að VG verði eini flokkurinn með tiltölulega jafnt kynjahlutfall í þingflokkum. Hinir flokkarnir nálgast það ekki.
  • VG hefur barist ötullega fyrir málfrelsi fólks um kaup og kjör og mun halda því áfram. Með afnámi launaleyndar mun samningsstaða kvenna varðandi laun batna til muna.
  • VG hefur lagt fram frumvarp um að Jafnréttisstofa fái aukið vægi, svipað Samkeppnisstofnun, að hún hafi möguleika á að afla upplýsinga og grípa til aðgerða þegar nauðsyn krefur, sem og að álit hennar verði bindandi.
  • VG kynnti sænsku leiðina fyrst til sögunnar árið 1999 og hefur aflað henni fylgis fram til dagsins í dag. Nú er svo komið að allir flokkar nema Sjálfstæðisflokkur telja ráðlegt að gera kaup á vændi refsiverð.
  • VG hefur barist ötullega gegn klámvæðingunni - bannaði einkadans og útgáfu leyfa fyrir nýjum nektardansstöðum í borginni í tíð R-listans og vakti máls á klámráðstefnunni sem flæmd var úr landi í mars á þessu ári.
  • VG hefur lagt fram frumvarp um að konur af erlendum uppruna sem búa við heimilisofbeldi verði ekki háðar maka um dvalarleyfi hérlendis.
  • VG hefur lagt fram frumvarp um fórnarlamba- og vitnavernd til hagsbóta fyrir konur sem hingað eru seldar mansali.
  • VG hefur lagt fram frumvarp um austurrísku leiðina - að ofbeldismenn verði fjarlægðir af heimilum í stað þolendanna.
  • VG mun vinna að auknu kynfrelsi kvenna - m.a. með því að fjarlægja ofbeldistenginguna í nauðgunarákvæði hegningarlaga. Að nauðgun verði refsiverð, hvort sem hótun um annars konar ofbeldi fylgir glæpnum eða ekki.
  • VG vill auka jöfnuð í samfélaginu - öllum til góða."

Við þetta er engu að bæta nema merkið X við V á laugardaginn elskurnar mínar.Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gestur Guðjónsson

Sædís: Framsókn var fyrsti flokkurinn sem setti kynjahlutföll í LÖG flokksins 60-40%. Framsókn hefur unnið frumvarp sem myndi leiða þetta í lög sem og aukið hlutverk Jafnréttisstofu, sem var stofnuð af Framsókn. Vændi og klámi á að berjast gegn. Sóley vinkona mín í umhverfisráði er frábær í sinni baráttu. Þar fer Framsókn og VG alveg saman. Um hitt erum við sammála, en Framsókn er í 1. sæti jafnréttisvogarinnar hvað varðar framboðslistana og helmingur þingflokks Framsóknar var á tímabili konur. Framsókn talar ekki bara um jafnrétti. Framsókn framkvæmir jafnrétti.

Gestur Guðjónsson, 8.5.2007 kl. 17:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband