Alþýðusamband Ísland mismunar framboðum

Það er einkennilegt að sjálft Alþýðusamband Íslands skuli mismuna framboðum sem bjóða fram til þings núna í vor.

 í kvöld var framboðsfundur á vegum þeirra þar sem formenn allra flokka sem eiga menn á þing varð boðið að taka þátt.

Hvaða skilaboð er það til samfélagsins. Þarna er að mínu mati verið að hunsa lýðræðið. það er ekki verið að hleypa að öllum sjónarmiðum. Maður spyr sig hvort þeir séu hræddir við ákveðin sjónarmið og stefnumál einhverra framboða s.s. Regnbogans.

Annars er nú gaman að geta þess að bæði Regnboginn, Dögun og Píratar eiga fulltrúa á þingi í dag. En Björt framtíð sem á lika fulltrúa á þingi er eina framboðið utan fjórflokksins sem fékk boð á þennan framboðsfund.

Mér finnst Gylfi og Así setja niður með svona framgöngu.


mbl.is „Draga lífsneista úr heimilunum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

ASÍ hefur ekki það hlutverk að verja stjórnvöld eða pólitíska stjórnmálaflokka, heldur alþýðuna/verkafólkið og berjast fyrir þeirra réttmæta kaupmætti. Það er ekki verkefni ASÍ að styðja stórveldispantað þrælahald.

Gylfi Arnbjörnsson virðist ekki hafa hugmynd um, til hverra verka ASÍ-toppurinn var ráðinn, og hvað hann á að vinna við í raunheimum á Íslandi?

Honum er þó ekki sagt upp störfum, né lækkaður í launum, þrátt fyrir vinnusvikin? Hvers vegna?

RÚV allra landsmanna verður að sinna sínu skylduhlutverki, og útskýra þetta leikrit fyrir eigendum fjölmiðilsins RÚV. Ríkisfjölmiðilsins sem er í eigu allra landsmanna, sem kostaður er með nefskatti á hvítvoðunga, jafnt sem ó-kosningaviðurkennda 67 ára og eldri.

Hvorki hvítvoðungar né eldri en 67 ára hafa verið teknir með í skoðanakönnunum fyrir alþingiskosningarnar! Ég var svo vitlaus að ég hélt að 67 ára og eldri hefðu kosningarétt, en ég hef víst haft rangt fyrir mér?

Það verður nóg að gera hjá sagnfræðingum framtíðarinnar, við að skrá nýju Íslandssöguna á Íslandi, um nýja óspillta Íslandið "jafnréttaða"!

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 11.4.2013 kl. 21:25

2 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

ég skil ekki þá hugsun hjá þeim sem leggja fyrir skoðanakannanir að hafa ekki 67 ára og eldri með í þeim.

Sædís Ósk Harðardóttir, 11.4.2013 kl. 21:30

3 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Sædís. Það virðist öllu vera tjaldað til, til að gefa skakka mynd af vilja fólksins í landinu. Siðferðis og lögbrot virðast ekki flækjast fyrir þeim sem standa fyrir þessum fölsuðu könnunum, og þrýstingi valdsstjórnarinnar.

Þetta eru að sjálfsögðu óskiljanleg vinnubrögð, í landi sem telst siðmenntað ríki!

Ég vara fólk við að trúa blekkingarniðurstöðum skoðanakannana. Þetta er svindlbragð til að stýra kosninganiðurstöðum. Blekkingar komast upp um síðir.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 11.4.2013 kl. 21:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband