Kominn tími á bætt kjör kennara

Ég tel að staða okkar kennara sé orðin mjög slæm, mikilvægt er fyrir launanefnd sveitarfélaga að átta sig á stöðunni strax og gera eitthvað í málunum.  Ég veit að það vill engin lenda í þeirri aðstöðu sem kom upp haustið 2004 þegar verkfallið langa skall á og var svo klippt á það með þvingunarúrræðum ríkisvaldsins.  Sem nota bene hefur haft sveitarfélögin í fjárhagslegu svelti í mörg ár.  Mikilvægt er að leiðrétta þennan mismun svo sveitarfélögin geti staðið við sínar skuldbindingar og staðið undir þeim kröfum sem þeim ber í skólamálum, kröfum sem ríkisvaldið setur á þau.

Laun kennara hafa undanfarin ár dregist mjög svo aftur úr, þessu verður að breyta svo að skólahald geti blómstrað sem skyldi.  Það er ekki út af neinu að kennarar séu að leita í önnur störf og hætta kennslu.  Ef við viljum halda góðu fólki í stéttinni verður að leiðrétta þenna mikla launamun.

 


mbl.is Þögul mótmælastaða kennara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Launamun í samanburði við hvað? Fólk með jafn mikla vinnuskyldu, jafn langa menntun og jafn löng sumarfrí og kennarar? Við hverja eru kennarar að miða?

Stefán Einar Stefánsson (IP-tala skráð) 13.2.2007 kl. 14:45

2 identicon

Langar bara til að skjóta að þeim upplýsingum að á Íslandi er orðið lengsta skólaár af öllum norðurlöndum talið - jafnvel allri Evrópu!! (England Þýskaland, Holland). Þannig að hvaða þvaður er þetta alltaf um langt sumarfrí??? Eru ekki allalgengt að fólk á Íslandi hafi 6-7 vikur í sumarfrí þ.e.a.s. fólk sem er í fullri vinnu ??? Viðmiðunarstéttir kennara eru að sjálfsögðu stéttir með svipaða háskólamenntun og krafist er af kennurum (viðskiptafræðingar - hjúkrunarfræðingar - þroskaþjálfarar . leikskólakennar o.s.frv.).

Jóhanna Jónsdóttir (IP-tala skráð) 13.2.2007 kl. 15:04

3 identicon

Að gefnu tilefni held ég að þessi sorglegi misskilningur um að sumarfrí kennara sé afskaplega langt megi rekja til þess hvernig sumarfrí kennara voru fyrir 40 árum.  Fólk tengir yfirleitt við það sem það þekkir!   Vinnuskylda kennara er að jafnaði 42.6 stundir á viku.  Inn í því eru ekki tölur sem bætast við þegar yfirferð prófa og heimavinnu eru reiknaðar með.  Hvað menntun varðar eru kennarar allt frá því að vera með þriggja ára háskólamenntun upp í 6 ár sumir meira.  Ofan á þetta bætist síðan endurmenntun sem skólarnir þurfa sjálfir að skipuleggja.  Margir skólar velja þá leið að bæta endurmenntuninni við hefðbundinn vinnutíma.  Reikni nú hver sem vill!  Bendi Stefáni á www.ki.is!

Bestu kveðjur,

Þóra K.

Þóra K (IP-tala skráð) 13.2.2007 kl. 15:20

4 Smámynd: Þorgerður Laufey Diðriksdóttir

Vinnutími kennara er ekki hér til umræðu, heldur þau launakjör kennara búa við.

Kennara eru að fara fram á að sá kjarasamningur sem nú er í gildi sé virtur og komist til framkvæmda, þar á meðal endurskoðunar ákvæði kjarasamningsins.

Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, 13.2.2007 kl. 22:24

5 identicon

Því skyldi vinnutími kennara ekki vera til umræðu?  Það er eðlilegt að fræða þann sem ekki veit því fáfræði kemur í veg fyrir fordóma!  Það eru margar hliðar á teningi og kennarastarfið hefur breyst það er staðreynd!  Það er líka staðreynd að margir vita ekki hvernig starfið og vinnutíminn hefur breyst!  Því er eðlilegt að upplýsa!

Með virðingu og vinsemd,

Þóra K.

Þóra K (IP-tala skráð) 13.2.2007 kl. 23:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband