Jafnræði?

Bara við það að lesa þessa frétt kemur upp í huga mér sú spurning hvort allir sitji við sama borð hvað varðar jafnræði á kynningu á sjálfum sér í þessu framboði.

Um 400 til 450 frambjóðendur bjóða sig fram til stjórnlagaþings, þeir frambjóðendur eru "misþekktir" einstaklingar fyrir augum landsmanna.

Hvers vegna þarf að nafngreina þessa einstaklinga hér að neðan bara vegna þess að þeir eru "þekktari" en aðrir? 

Það er strax byrjað að hamra á þeim sem ættu þá að þurfa minni kynningu en aðrir.


mbl.is Á fimmta hundrað í framboði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vendetta

Ég er ekki viss, en mér virðast þessir fimm nefndu einstaklingar allir vera ESB-sinnar. Svo er spurning um hversu þjóðþekktir þeir eru. Ég hef t.d. aldrei heyrt um þessa Silju né heldur Ingu Lind.

En þess konar skort á jafnræði sem þú nefnir, að sumir eru þjóðþekktir, en aðrir ekki, er lítið hægt að gera við fyrirfram. Frambjóðendur hafa tækifæri til að kynna sig rækilega á netinu og það er ókeypis. Ég kýs frekar einhvern sem ég hef kynnst á bloggsíðum (og sem eru á sama máli og ég þar sem það skiptir máli í sambandi við fullveldi og mannréttindi) heldur en einhvern landsþekktan pólítíkus, sem hefur ráð á að kaupa hverja auglýsinguna eftir aðra. Ég hef mikið vantraust á íslenskum uppgjafaþingmönnum og embættismönnum og mun ALDREI kjósa neinn þannig til stjórnlagaþingsins og mun hvetja fólk til að gera það heldur ekki. Ég mun hins vegar hvetja vini mína til að kjósa mann eða konu sem hefur hugsjónir og principfestu og sem lætur ekki ESB-sinna vaða yfir sig.

Vendetta, 18.10.2010 kl. 14:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband